Frá vettvangi á gatnamótum Sogavegar og Réttarholtsvegar.
17 Desember 2020 16:03

Í síðustu viku slasaðist einn vegfarandi í einu umferðarslysi á höfuðborgarsvæðinu. Tímasetningar, aðdragandi og orsakir slysanna sem urðu vikuna 6. – 12. desember, en alls var tilkynnt um 25 umferðaróhöpp í umdæminu.

Föstudaginn 11. desember kl 20.46 varð tveggja bíla árekstur á gatnamótum Sogavegar og Réttarholtsvegar. Í aðdragandanum var annarri bifreiðinni ekið vestur Sogaveg, en hinni austur Sogaveg og hugðist ökumaður hennar beygja til vinstri og aka norður Réttarholtsveg. Annar ökumannanna var fluttur á slysadeild.

Enn sem fyrr er ástæða til að vekja athygli á mikilvægi þess að allir vegfarendur fari ávallt varlega í umferðinni og virði gildandi umferðarlög.