Frá vettvangi við Reykjanesbraut.
11 Ágúst 2021 10:37

Í síðustu viku slösuðust sjö vegfarendur í sex umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu. Tímasetningar, aðdragandi og orsakir slysanna sem urðu vikuna 1. – 7. ágúst, en alls var tilkynnt um 34 umferðaróhöpp í umdæminu.

Tvö umferðarslys voru tilkynnt þriðjudaginn 3. ágúst. Kl. 15.07 var bifreið ekið á vinstri akrein norður Reykjanesbraut að umferðarbrú sem tengir Kaldárselsveg yfir Reykjanesbraut, en þar missti ökumaðurinn stjórn á bifreiðinni. Bifreiðin fór utan í vegrið á miðeyju þar sem hún kastaðist áfram á ljósastaur hægra megin við veginn og valt þar nokkrar veltur þar til hún stöðvaðist á toppnum undir brúnni. Ökumaður, sem er grunaður um fíkniefnaakstur, og farþegi voru fluttir á slysadeild. Og kl. 21.54 var vespu ekið göngustíg sem liggur frá Þorrasölum að Lindakirkju, við göngubrú yfir Arnarnesveg. Þar kvaðst ökumaðurinn hafa lent í drullu við hliðina á gangstéttinni og hjólið hefði sokkið í hana, en við það missti hann stjórn á vespunni sem féll á hliðina. Auk ökumannsins voru þrír farþegar á hjólinu og var einn þeirra fluttur á slysadeild, en fjórmenningarnir eru allir á unglingsaldri. Ökumaðurinn var með öryggishjálm en ekki farþegarnir.

Tvö umferðarslys voru tilkynnt föstudaginn 6. ágúst. Kl. 7.58 var bifreið ekið norður Grensásveg, yfir Miklubraut, og á rafhlaupahjól sem var hjólað austur göngustíg yfir ljósastýrða gagnbraut þar sem hjólreiðamaðurinn þveraði Grensásveg norðan við gatnamótin. Hjólreiðamaðurinn, sem er talinn hafa hjólað gegn rauðu ljósi, var fluttur á slysadeild. Og kl. 9.14 var reiðhjóli hjólað vestur Gnoðarvog inn í hringtorg við Álfheima með fyrirhugaða hjólaleið áfram vestur Gnoðarvog þegar bifreið var ekið suður Álfheima og inn í hringorgið með fyrirhugaða aksturleið áfram Álfheima. Árekstur varð með ökutækjunum þegar bifreiðinni var ekið utan í afturgjörð reiðhjólsins svo hjólreiðamaðurinn féll í götuna. Hjólreiðamaðurinn var fluttur á slysadeild.

Tvö umferðarslys voru tilkynnt laugardaginn 7. ágúst. Kl. 11.24 var bifreið ekið suður Strandgötu inn á gatnamót Suðurbrautar/Hringbrautar þegar annarri bifreið var ekið norður Strandgötu áleiðis í vinstri beygju vestur Suðurbraut þegar árekstur varð með bifreiðunum. Annar ökumannanna var fluttur á slysadeild. Og kl. 16.57 var léttu bifhjóli ekið göngustíg frá Reykjanesbraut í átt að Múlalind.  Ökumaðurinn beygði af göngustígnum í norður inn á reiðhjólastíg í veg fyrir hjólreiðamann, sem hjólaði suður reiðhjólastíginn á hægri akrein bak við Krónuna Lindum. Árekstur varð með ökutækjunum, en hjólreiðamaðurinn, sem var með öryggishjálm, ætlaði sjálfur að leita sér læknisaðstoðar.

Enn sem fyrr er ástæða til að vekja athygli á mikilvægi þess að allir vegfarendur fari ávallt varlega í umferðinni og virði gildandi umferðarlög.