15 September 2022 11:34

Í síðustu viku slösuðust níu vegfarendur í níu umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu. Tímasetningar, aðdragandi og orsakir slysanna sem urðu vikuna 4. – 10. september, en alls var tilkynnt um 35 umferðaróhöpp í umdæminu.

Tvö umferðarslys voru tilkynnt sunnudaginn 4. september. Kl. 21.19 féll hjólreiðamaður af rafmagnshlaupahjóli á Fiskislóð. Hjólreiðamaðurinn, sem var ekki með öryggishjálm, var fluttur á slysadeild. Og kl. 11.13 féll hjólreiðamaður af rafmagnshlaupahjóli á Skógarvegi. Hjólreiðamaðurinn, sem var ekki með öryggishjálm, var fluttur á slysadeild.

Þrjú umferðarslys voru tilkynnt mánudaginn 5. september. Kl. 14.09 var bifreið ekið á hjólreiðamann á rafmagnshlaupahjóli á gangbraut á Suðurlandsbraut við Hilton Reykjavík Nordica. Ökumaðurinn fór af vettvangi án þess að huga að þeim sem ekið var á, en hann fannst síðar og var miður sín yfir atvikinu. Hjólreiðamaðurinn var fluttur á slysadeild. Kl. 15.12 var bifreið ekið á hjólreiðamann á rafmagnshlaupahjóli á gatnamótum Bitruháls og Bæjarháls. Í aðdragandanum var bifreiðinni ekið suður Bitruháls inn á framhjálhlaup í hægri beygju vestur Bæjarháls og stöðvuð þar við biðskyldu að sögn ökumannsins. Síðan var ekið aftur af stað þegar hann taldi það óhætt vegna annarrar umferðar frá Bitruhálsi inn á Bæjarháls til vesturs þegar hjólreiðamaður á rafmagnshlaupahjóli hafi hjólað austur gangstétt við Bæjarháls inn á framhjáhlaupið svo árekstur varð. Á vettvangi er talsverður trjágróður við gatnamótin sem skyggir á sýn ökumanna frá biðskyldu þegar ekið er nefnt framhjáhlaup. Hjólreiðamaðurinn, sem var ekki með öryggishjálm, var fluttur á slysadeild. Og kl. 16.22 féll hjólreiðamaður af reiðhjóli á hjólastíg við Nauthólsveg. Hjólreiðamaðurinn var fluttur á slysadeild.

Þriðjudaginn 6. september kl. 1.44 féll hjólreiðamaður af rafmagnshlaupahjóli á Gunnarsbraut við Flókagötu.  Hjólreiðamaðurinn, sem var ölvaður og ekki með öryggishjálm, var fluttur á slysadeild.

Miðvikudaginn 7. september kl. 15.35 féll hjólreiðamaður af rafmagnshlaupahjóli á Suðurgötu í Hafnarfirði. Hjólreiðamaðurinn var fluttur á slysadeild.

Fimmtudaginn 8. september kl. 15.26 var bifreið ekið austur Miklubraut, á milli Stigahlíðar og Kringlumýrarbrautar, og aftan á aðra bifreið, sem hafði stöðvað vegna umferðar fram undan. Annar ökumannanna var fluttur á slysadeild.

Föstudaginn 9. september kl. 19.19 féllu hjólreiðamaður og farþegi af rafmagnshlaupahjóli á gangstétt við Rauðarárstíg. Hjólreiðamaðurinn var fluttur á slysadeild.

Enn sem fyrr er ástæða til að vekja athygli á mikilvægi þess að allir vegfarendur fari ávallt varlega í umferðinni og virði gildandi umferðarlög.