7 Maí 2021 17:05

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns bifhjóls sem ók á konu á reiðhjóli á göngustíg í Elliðaárdal, norðan Stekkjarbakka beint fyrir neðan húsið Skálará, í gær, fimmtudaginn 6. maí, en slysið varð kl. 15.30. Ökumaður bifhjólsins mun hafa numið staðar örstutt á vettvangi til að taka upp brak úr bifhjólinu, en síðan ekið áfram eftir göngustígnum til austurs án þess að kanna nokkuð með ástand konunnar. Hún var flutt á slysadeild og reyndist hafa handleggbrotnað við áreksturinn.

Við atvik eins og þetta er mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið. Sömuleiðis er áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi. Lögreglan biður ökumann bifhjólsins um að gefa sig fram, en hafi aðrir orðið vitni að slysinu eru hinir sömu beðnir um að  hafa samband í síma 444 1000. Einnig má senda upplýsingar um málið í tölvupósti á netfangið sigrun.jonasdottir@lrh.is