6 Nóvember 2015 16:38

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns sem ók grænleitum fólksbíl á fjórtán ára pilt á reiðhjóli á Fífuhvammsvegi í Kópavogi, skammt frá brúnni á móts við Smáralind, klukkan 8.55 mánudagsmorguninn 2. nóvember sl. Lögreglu var tilkynnt um slysið daginn eftir en við skoðun á slysadeild kom í ljós að pilturinn var talsvert lemstraður. Reiðhjólið, sem pilturinn fékk í fermingargjöf, er enn fremur illa farið og er það ekki síður bagalegt.

Við atvik eins og þetta er mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið. Sömuleiðis er áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi. Lögreglan biður umræddan ökumann um að gefa sig fram en hafi aðrir orðið vitni að slysinu eru hinir sömu beðnir um að hafa samband í síma 444-1000. Upplýsingum um málið má sömuleiðis koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.