15 Janúar 2016 15:20

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns sem ók dökkbláum fólksbíl á fjórtán ára stúlku á mótum Logafoldar og Fjallkonuvegar, norðaustan Foldaskóla í Grafarvogi, klukkan 12.45 miðvikudaginn 13. janúar. Lögreglu var tilkynnt um slysið daginn eftir en stúlkan er marin og bólgin eftir slysið.

Við atvik eins og þetta er mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið. Sömuleiðis er áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi. Lögreglan biður umræddan ökumann um að gefa sig fram en hafi aðrir orðið vitni að slysinu eru hinir sömu beðnir um að hafa samband í síma 444-1000. Upplýsingum um málið má sömuleiðis koma á framfæri í tölvupósti á netfangið valgardurv@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.