28 Nóvember 2017 18:07

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns sem ók bifreið á gangandi vegfaranda í Skógarseli í Breiðholti, hjá strætisvagnabiðstöð við íþróttasvæði ÍR, um kl. 8.30 í gærmorgun, mánudaginn 27. nóvember. Lögreglu var tilkynnt um slysið í dag, en þá hafði vegfarandinn, 15 ára stúlka, leitað á slysadeild vegna áverka. Ökumaðurinn, kona, ræddi við stúlkuna á vettvangi og ók síðan á brott.

Við atvik eins og þetta er mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið. Sömuleiðis er áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi. Lögreglan biður umræddan ökumann um að gefa sig fram en hafi aðrir orðið vitni að slysinu eru hinir sömu beðnir um að hafa samband í síma 444 1000. Upplýsingum um málið má sömuleiðis koma á framfæri í tölvupósti á netfangið rikardur@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.