19 Júní 2018 11:15

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns rauðrar fólksbifreiðar sem ók á 7 ára dreng á reiðhjóli í Árskógum í Reykjavík skömmu fyrir kl. 16 í gær, mánudaginn 18. júní, þannig að líkamstjón hlaust af, en ökumaðurinn ók rakleiðis af vettvangi. Drengurinn hjólaði á göngustíg, sem liggur meðfram Skógarseli og aftan við bensínstöð N1 að Árskógum þar sem slysið varð.

Við atvik eins og þetta er mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið. Sömuleiðis er áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi. Lögreglan biður ökumann rauðu fólksbifreiðarinnar um að gefa sig fram en hafi aðrir orðið vitni að slysinu eru hinir sömu beðnir um að  hafa samband í síma 444 1000. Einnig má senda upplýsingar um málið í tölvupósti á netfangið sigrun.jonasdottir@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.