5 Október 2021 14:49

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns fólksbifreiðar sem ók á unga stúlku á rafmagnshlaupahjóli við Grandatorg í Reykjavík um kl. 16.43 í gær, mánudaginn 4. október, þannig að líkamstjón hlaust af, en ökumaðurinn ók rakleiðis af vettvangi. Stúlkan var á leið yfir Ánanaust til suðurs, en hringtorgið er á mótum Ánanaust, Hringbrautar og Eiðsgranda, þegar slysið varð.

Við atvik eins og þetta er mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið. Sömuleiðis er áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi. Lögreglan biður ökumann fólksbifreiðarinnar um að gefa sig fram en hafi aðrir orðið vitni að slysinu eru hinir sömu beðnir um að  hafa samband í síma 444 1000. Einnig má senda upplýsingar um málið í tölvupósti á netfangið gudmundur.pall@lrh.is