17 Febrúar 2023 17:04

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns bifreiðar sem ók á gangandi vegfaranda á gatnamótum Hrafnsgötu og Burknagötu í Reykjavík, neðan við Landspítalann á Hringbraut, í gærmorgun, fimmtudaginn 16. febrúar, en tilkynning um slysið barst lögreglu kl. 8.29. Fyrrnefndur ökumaður nam staðar á vettvangi og átti orðaskipti við vegfarandann, en ók síðan á brott án þess að skeyta frekar um afdrif hans, en vegfarandinn reyndist töluvert slasaður.

Við atvik eins og þetta er mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið. Sömuleiðis er áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi. Lögreglan biður umræddan ökumann um að gefa sig fram en hafi aðrir orðið vitni að slysinu eru hinir sömu beðnir um að hafa samband í síma 444 1000. Upplýsingum um málið má sömuleiðis koma á framfæri í tölvupósti á netfangið gudmundur@lrh.is

Meðfylgjandi er mynd frá vettvangi, en tekið skal fram að bifreiðin á gatnamótunum er með öllu ótengd slysinu.