7 Desember 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Nýbýlavegi í Kópavogi á níunda tímanum í morgun. Þar varð gangandi vegfarandi fyrir strætisvagni, sem var ekið austur Nýbýlaveg á milli Túnbrekku og Þverbrekku, en tilkynnt var um slysið kl. 8.52. Þeir sem urðu vitni að slysinu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is