18 Júní 2015 15:30

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Vífilstaðavegar sunnudaginn 7. júní, en tilkynning um áreksturinn barst kl. 15:26. Þar rákust saman dökkgrá Nissan Micra og dökkgrár Toyota Landcruiser 120 en ökumönnunum ber ekki saman um stöðu umferðarljósa. Toyota bifreiðinni var ekið norður Hafnarfjarðarveg en Nissan bifreiðinni var ekið áleiðis inn á gatnamótin vestur Vífilstaðaveg, þar sem áreksturinn varð. Annar ökumannanna var fluttur á slysadeild til aðhlynningar.
Þeir sem urðu vitni að árekstrinum eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000 en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið asdis.haraldsdottir@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.