22 Janúar 2018 15:25

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Nýbýlavegar laugardaginn 20. janúar, en tilkynning um áreksturinn barst kl. 8.06. Þar rákust saman hvítur Iveco sendibíll og rauður Renault Clio, en ökumönnunum ber ekki saman um stöðu umferðarljósa. Iveco bifreiðinni var ekið vestur Breiðholtsbraut og Renault bifreiðinni af frárein Reykjanesbrautar, en ökumaður hennar beygði til vinstri á gatnamótunum og hugðist síðan aka austur Breiðholtsbraut þegar áreksturinn varð.

Þeir sem urðu vitni að árekstrinum eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000, en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið heimir@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.