30 Desember 2022 11:36
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Höfðabakka í Reykjavík aðfaranótt laugardagsins 10. desember sl., en þar var ekið á gangandi vegfaranda sem lést. Tilkynning um slysið barst kl. 0.33, en það varð á Höfðabakka, nálægt Árbæjarsafni. Þau sem urðu vitni að slysinu eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000, en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið 1710@lrh.is
Vegna slyssins var fjölmiðlum send svohljóðandi fréttatilkynning síðdegis þann 10. desember:
„Banaslys varð á Höfðabakka í Reykjavík í nótt en þar var ekið á gangandi vegfaranda. Tilkynning um slysið barst um hálfeittleytið í nótt, en bifreið á leið norður Höfðabakka, nálægt Árbæjarsafni, hafnaði á vegfarandanum, sem var karlmaður á fimmtugsaldri. Hann var fluttur á Landspítalann, en lést þar síðar um nóttina. Lokað var fyrir umferð um Höfðabakka, á milli Bæjarháls og Stekkjarbakka, á meðan unnið var á vettvangi.
Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu, en Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.“