23 Ágúst 2009 12:00

Starfsmenn umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu höfðu í mörg að líta á Menningarnótt. Umferðin gekk að mestu áfallalaust þótt nokkur umferðaróhöpp væru tilkynnt til lögreglunnar. Ekið var á 10 ára strák á Hringbraut um kvöldmatarleytið en meiðsli hans voru ekki talin alvarleg. Talsvert var um að ökutækjum væri illa og/eða ólöglega lagt í og við miðborgina. Sértaklega þó í Þingholtunum og nágrenni eftir hádegi og fram eftir degi. Mjög mikil umferð var á miðborgarsvæðinu eftir að flugeldasýningunni lauk en ágætlega gekk að greiða úr henni, ekki síst á Sæbraut. Þeir sem fóru um Hringbraut og Bústaðaveg voru hinsvegar aðeins lengur til síns heima en á síðartalda staðnum varð umferðaróhapp á tólfta tímanum í gærkvöld. Að öllu samanlögðu verður þó ekki annað sagt en að umferðin hafi gengið vel á Menningarnótt.