5 September 2006 12:00

Lögreglan í Reykjavík hafði afskipti af tveimur unglingsstúlkum, 12 og 13 ára, sem létu mjög ófriðlega í fjölbýlishúsi í borginni í gærkvöld. Hvorug þeirra býr á umræddum stað en íbúar hússins kvörtuðu sáran undan framferði þeirra sem var vægast sagt ekki til fyrirmyndar.

Lögreglan hugðist koma stúlkunum til síns heima en þær brugðust ókvæða við og var þá afráðið að flytja þær á lögreglustöð. Á leiðinni þangað hótuðu þær lögreglumönnum öllu illu og viðhöfðu svívirðingar sem ekki er hægt að hafa eftir. Lögreglumenn eru ýmsu vanir en þarna keyrði um þverbak enda var munnsöfnuður stúlknanna óhugnanlegur. Í framhaldinu var haft samband við forráðamenn þeirra sem komu og sóttu stúlkurnar.

Þetta mál minnir að því leyti á uppákomuna í Skeifunni um helgina að víða skortir á aga og virðingu. Eins er það áhyggjuefni þegar fólk fylgir ekki fyrirmælum lögreglunnar.