9 Mars 2010 12:00

Piltur og stúlka, bæði 18 ára, voru handtekin eftir húsleit í Reykjavík um helgina. Þar hafði staðið yfir samkvæmi nokkurra ungmenna á aldrinum 17-20 ára en innandyra fundust fíkniefni. Um var að ræða bæði amfetamín og marijúana.