19 Nóvember 2009 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði nýlega hald á Raymond Weil armbandsúr af gerðinni Geneva automatic. Eigandi þess getur vitjað úrsins gegn framvísun ábyrgðarskírteinis sem sýnir raðnúmer úrsins. Hinn sami er beðinn um að setja sig í samband við þjónustuver lögreglunnar sem er opið frá kl. 8-16 alla virka daga en símanúmerið er 444-1000. Meðfylgjandi er mynd af úrinu.