29 Maí 2012 12:00

Um sextíu ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu um hvítasunnuhelgina en í grófustu brotunum var ekið á 50-60 km hraða umfram leyfðan hámarkshraða. Þrír þessara ökumanna voru ölvaðir eða undir áhrifum fíkniefna en alls voru nítján teknir fyrir ölvunarakstur í umdæminu og þrettán fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna.