1 Mars 2012 12:00

Undanfarið hefur lögreglan stöðvað allmarga ökumenn sem voru að tala í síma án þess að notast við handfrjálsan búnað. Í gær og fyrradag voru t.a.m. nokkrir tugir ökumanna stöðvaðir vegna þessa en hinir sömu eiga 5.000 króna sekt yfir höfði sér. Lögreglan hvetur ökumenn til að láta af þessu í umferðinni, bæði til þess að koma í veg fyrir auka útgjöld og ekki síst til að stuðla að meira öryggi í umferðinni.