28 Júlí 2008 12:00

Tæplega tvítugur piltur var stöðvaður í Bankastræti aðfaranótt laugardags en sá ók bílnum sínum upp fyrrnefnda götu og því gegn einstefnu. Ökumaðurinn var látinn undirgangast öndunarpróf og blés í mæli lögreglunnar en pilturinn reyndist allsgáður. Aðspurður um ökuferðina sagðist hann hafa talið sig vera á leiðinni upp Hverfisgötu en svo virðist sem pilturinn sé ekki mjög kunnugur í miðborginni af þessu að dæma. Hinum utangátta ökumanni var svo snúið við og ekki er annað vitað en hann hafi komist heill á leiðarenda.