14 Júlí 2018 10:00

Stundum þarf ekki mikið til að fólk hringi í lögregluna og óski aðstoðar hennar. Lögreglan er ávallt tilbúin að bregðast við, en hún verður þó iðulega að forgangsraða verkefnum og í einhverjum tilvikum er ekki hægt að bregðast strax við hjálparbeiðnum. Þannig var því einmitt farið einu sinni þegar íbúi í ónefndu fjölbýlishúsi á höfuðborgarsvæðinu hringdi og kallaði eftir aðstoð lögreglu. Málavextir voru þeir að tilkynnanda var gróflega misboðið sökum þess að nágranni hans á efri hæðinni var að þrífa svalirnar hjá sér og fór heldur óvarlega að við verkið. Við þrifin notaði nágranninn vatn, en svo illa vildi til að eitthvað af vatni lak niður á svalir þess sem kvartaði og í blómapott sem þar var. Lögreglan reyndi að miðla málum og hafði samband símleiðis við þann sem kvartað var undan, en sá hafði eilítið aðra sögu að segja og sagði m.a. sér til varnar að umræddur blómapottur væri nú ekki staðsettur samkvæmt reglugerð og því ekki innan lóðamarka kvartandans. Nú var úr vöndu að ráða, en lögreglan mat það svo að útkallið mætti bíða og ekki væri knýjandi þörf á að senda lögreglumenn á vettvang til að framkvæma nákvæmar mælingar á staðsetningu blómapottsins. Deilendur voru upplýstir um þetta og heyrðist ekki frekar frá þeim í framhaldinu. Er vonandi að málið hafi fengið farsælan endi þótt auðvitað sé ekki hægt að fullyrða neitt um það hvernig sambúð nágrannanna gekk eftir að stóra blómapottamálið kom upp.

Þrátt fyrir það sem hér hefur verið nefnt viljum við ítreka að það er betra að hringja í lögregluna einu sinni of oft heldur en einu sinni of sjaldan.