23 Janúar 2019 15:02

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við grýlukertum en þau eru víða að finna þessa dagana. Ljóst er að af þeim getur stafað nokkur hætta og því er full ástæða til að hvetja vegfarendur til að sýna aðgát, ekki síst á miðborgarsvæðinu. Þetta á einnig við um snjóhengjur sem lafa fram af húsþökum.

Eigendur og umráðamenn húsa eru beðnir um að bregðast við en hinum sömu er jafnframt bent á ákvæði í lögreglusamþykkt en þar segir m.a.: Eiganda eða umráðamanni húss er skylt að fjarlægja af húsi sínu snjó og grýlukerti, sem fallið geta niður og valdið hættu fyrir vegfarendur.