15 Janúar 2007 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við grýlukertum en þau eru víða að finna þessa dagana. Ljóst er að af þeim getur stafað nokkur hætta og því er full ástæða til að hvetja vegfarendur til að sýna aðgát. Eigendur og umráðamenn húsa eru beðnir um að bregðast við en hinum sömu er jafnframt bent á 7. gr. lögreglusamþykktar en í henni segir m.a.: Eiganda eða umráðamanni húss er skylt að fjarlægja af húsi sínu snjó og grýlukerti, sem fallið geta niður og valdið hættu fyrir vegfarendur.

Myndin hér að neðan var tekin á höfuðborgarsvæðinu um helgina og sýnir glögglega hvernig ástandið er í þessum efnum.