7 Maí 2024 11:09
Lögreglu berast nú aftur tilkynningar um tölvupóst þar sem Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri er ranglega titluð sem sendandi og skilaboðin ranglega merkt lögreglu. Athygli er vakin á því að skilaboðin eru ekki frá ríkislögreglustjóra og er fólk varað við að svara tölvupóstinum og við því að ýta á hlekki og viðhengi sem geta fylgt svikapóstum sem þessum.
Sá sem fær póst af þessum toga skal tilkynna hann sem ruslpóst/spam í póstforritinu. Mikilvægt er að skoða öll skilaboð og allan póst með gagnrýnum augum, ekki smella á hlekki eða viðhengi sem eru grunsamleg og alls ekki gefa upp kortaupplýsingar eða viðkvæmar persónuupplýsingar.