21 Febrúar 2022 23:03

Ökumenn hafa verið að lenda í vandræðum á höfuðborgarsvæðinu í kvöld enda er víða mjög mikill vatnselgur á götum í umdæminu og bifreiðar hafa hreinlega stöðvast af þeim sökum. Þar má t.d. nefna hringtorg á mótum Hringbrautar, Eiðsgranda og Ánanausta, Bústaðaveg á móts við Valsvöllinn og hringtorg á mótum Reykjanesbrautar, Lækjargötu og Hlíðarbergs í Hafnarfirði. Fráveitukerfin hafa ekki haft undan og ljóst er að þetta ástand mun vara eitthvað áfram.

Ökumenn eru minntir á að vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu.