6 Febrúar 2023 16:24

ENGLISH AND POLISH BELOW

APPELSÍNUGUL VIÐVÖRUN, ORANGE WARNING, STOPIEŃ ZAGROŻENIA 2 (POMARAŃCZOWY ALERT)

Það blæs ekki byrlega á höfuðborgarsvæðinu þegar veðrið er annars vegar, en í fyrramálið, þriðjudaginn 7. febrúar, frá kl. 6-8 er í gildi appelsínugul viðvörun vegna veðurs í umdæminu. Spáð er sunnan 20-28 m/s og mjög snörpum vindhviðum. Hvassast verður í efri byggðum og við ströndina. Reiknað er með mikilli úrkomu, slyddu eða snjókomu. Nauðsynlegt er að tryggja muni utandyra, þ.e. að fólk festi lausa muni í nærumhverfi til að koma í veg fyrir foktjón. Eigendur báta eru jafnframt hvattir til að huga að þeim, en stórstreymi verður á sama tíma.

Veðrið gengur mjög hratt yfir, en það verður verst á þeim tíma þegar flestir eru á leið til vinnu eða í skóla. Færðin gæti spillst og þar með orðið tafir á umferð. Vegfarendur eru hvattir til að fara varlega.

Forsjáraðilar þurfa að meta sjálfir hvort fylgja þurfi börnum í skóla eða frístundastarf. Við appelsínugula veðurviðvörun er meiri þörf á að fylgja börnum í skólann.

Rétt er að hafa í huga að oft getur verið hvasst í efri byggðum. Ef hálka eða ofankoma fylgir veðrinu aukast líkur á að þörf sé fyrir fylgd.

Forsjáraðilar þurfa að morgni að tryggja að starfsmaður taki á móti börnunum þegar komið er í skólann þar sem einhver röskun getur  orðið á skólastarfi vegna veðurs. Tafist getur að fullmanna skólann og mega forsjáraðilar þá búast við að starfsfólk leiti liðsinnis þeirra. Forsjáraðilar eru hvattir til að taka slíkum óskum vel.

An Orange Weather Warning will be in effect from 6:00 AM to 8:00 AM, Tuesday, February 7.

The decision to accompany a child to school or extracurricular activities, during poor weather conditions, is always at the discretion of the guardian. During orange weather warning it is even more important to accompany a child to school.

Higher winds can be experienced in raised/hilly land areas. We recommend that children be accompanied in icy conditions with rain/snow fall.

The weather can disrupt normal school activities, and guardians must therefore ensure that a staff member is present to accompany the child into the schoolroom before leaving them at school.

Pomarańczowe ostrzeżenie pogodowe będzie obowiązywać od 6:00 do 8:00 we wtorek, 7 lutego.

Opiekunowie muszą sami ocenić, czy powinni odprowadzić dzieci do szkoły i na świetlicę. Podczas pomarańczowego alertu jest większa potrzeba odprowadzenia dziecka do szkoły.

Należy pamiętać, że wyżej usytuowanym rejonom może towarzyszyć silniejszy wiatr. Wraz z pojawieniem się gołoledzi oraz opadów rośnie potrzeba odprowadzenia dziecka na zajęcia.

Opiekunowie powinni sprawdzić czy na miejscu jest obecny pracownik, ponieważ z powodu pogody przebieg zajęć może zostać zakłócony. Pracownicy mogą mieć problemy z dotarciem do pracy i z tego powodu pracownicy szkoły mogą zwrócić się do opiekunów o wsparcie. Opiekunowie proszeni są w takich sytuacjach o pomoc i współpracę.