21 Mars 2007 12:00

Veggjakrot er hvimleitt vandamál en því miður hefur nokkuð borið á því á höfuðborgarsvæðinu. Piltar virðast einkum vera gerendur í málum sem þessum en einn var staðinn að verki í gær. Sá hafði krotað á hurð hjá stofnun í borginni en pilturinn, sem er 15 ára, játaði sök því sem næst undanbragðalaust. Málið var svo leyst á staðnum en piltinum var gert að þrífa veggjakrotið af hurðinni.

Vonandi hefur pilturinn lært sína lexíu en veggjakrot er dýrt spaug. Það kostar skattborgarana milljónir króna á hverju ári að þrífa krotið af mannvirkjum hér og þar í borginni. Og þetta eru fjármunir sem koma m.a. úr vasa foreldra veggjakrotaranna sjálfra.