28 Desember 2018 11:09

Einstaklingarnir sem létust í umferðarslysi við Núpsvötn í gær, sem og samferðamenn þeirra, eru allir breskir ríkisborgarar. Um er að ræða tvo bræður, ásamt fjölskyldum þeirra, á ferðalagi um Ísland og létust eiginkonur þeirra beggja. Önnur var fædd árið 1982 en hin 1985. Þá lést dóttir annarra hjónanna, fædd í janúar 2018

Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglu og rannsóknarnefnd samgönguslysa. Fyrir liggur að bifreiðinni var ekið fram hjá myndavélum við Hvolsvöll snemma sama morgun. Bifreiðinni var ekið til austurs, eftir Suðurlandsvegi og virðist hafa snúist á brúnni með þeim afleiðingum að hún fór uppá vegrið brúarinnar, hægra megin, eftir því nokkra vegalengd og síðan útaf henni. Þar fellur bíllinn niður á áraurana fyrir neðan brúna.

Hægt reyndist að aka, eftir vegslóða austar á sandinum, að bifreiðinni og athafna sig með sjúkrabíla og tækjabúnað björgunaraðila við brúna. Björgunaraðgerðir voru umfangsmiklar og margir sem að þeim komu. Þannig mættu viðbragðsaðilar alla leið frá Höfn að austan og frá Selfossi að vestan auk viðbragðsaðila úr Reykjavík sem m.a voru fluttir með tveimur þyrlum Landhelgisgæslunnar. Veðurfarslegar aðstæður til björgunar á vettvangi voru þokkalegar en hinsvegar þungbúið og mikil úrkoma vestar. Landhelgisgæslan mun hafa notað þriðju vélina til að leiðsegja þyrluflugmönnum á vettvang vegna þess hversu skyggni til flugs var slæmt sem og til að tryggja fjarskipti við vettvang. Viðbragðsaðilar á leið á vettvang, bæði austan og vestan að tilkynntu um hálkubletti á leiðinni þangað.
Lögregla biður þá sem mögulega hafa upplýsingar um slysið að hafa samband við okkur í síma 444 2010, á facebook eða í tölvupósti á netfanginu sudurland@logreglan.is

Lögregla þakkar öllum þeim sem að aðgerðunum komu fyrir þeirra vinnu, stóra sem smáa.  Samvinna viðbragðsaðila stendur upp úr í þessu erfiða máli og ljóst að slagkrafturinn er mikill þegar allir leggjast á eitt.