23 Desember 2019 12:58

Uppfært kl. 13:40

Vinnu á vettvangi brunans  er nú lokið.  Eldsupptök eru ókunn en ekkert hefur komið fram sem bendir til að um íkveikju sé að ræða.  Áfram verður unnið að rannsókn málsins.

Eldri tilkynning:

Tilkynning um eld í sumarhúsi í Grímsness og Grafningshreppi barst lögreglunni á Suðurlandi kl.20:39 í gærkvöldi.   Sumarhúsið reyndist alelda þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang. Slökkvistarf gekk vel en vakt var á brunavettvangi til morguns þegar unnt var að hefja vettvangsrannsókn.   Tilkynnandinn og jafnframt umráðamaður bústaðarins, var færður á lögreglustöð í gær og gisti fangaklefa í nótt en fór frjáls ferða sinna að skýrslutöku lokinni í morgun.   Áfram er unnið úr gögnum málsins og ljóst að sú vinna mun taka einhvern tíma. Eldsupptök eru ókunn.