26 Febrúar 2019 14:00

Af stöðufundi kl. 13:00

Um 60 björgunarsveitarmenn voru við leit í morgun á  og við Ölfusá að karlmanni fæddum 1968 búsettum á Selfossi sem talið er að hafi ekið bifreið sinni í ána um kl. 22:00 í gærkvöldi.  Gert er ráð fyrir að um 100 manns verði við leitina eftir hádegið og að leitað verði fram í myrkur.   Leitarsvæðið verður allt leitað tvisvar í dag.   Veður fer batnandi en hvasst var í morgun og mikil rigning.   Íshröngl er í ánni, sem er gruggug og vatn að aukast í henni og þarf að hafa það í huga við siglingar og leit.

Hafi viðkomandi ekki fundist í dag verður haldið áfram með leit á morgun.