7 Október 2019 09:37

68 ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt í umdæminu í liðinni viku. Þá voru höfð afskipti a ftveimur aðilum sem grunaðir eru um að hafa ekið bifreiðum sínum undir áhrifum fíkniefna.   Í báðum tilfellum reyndust ökumenn hafa fíkniefni í vörslum sínum. Þrír ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um að aka bifreiðum sínum ölvaðir.   Einn þeirra var þar með að landa sínum sjöunda ölvunarakstri en annar tekinn í 12 sinn.   Báðir hafa ítrekað ekið sviptir ökurétti.

Átta ökumenn voru kærðir fyrir að nota farsíma sinn án handfrjáls búnaðar við akstur bifreiða sinna.

Fimm bókanir eru tengdar dýrum. Á Hellu var ekið á svartan og hvítan kött sem drapst við það.   Reyndist ómerktur og líklega villiköttur.   Á Þykkvabæjarvegi var ekið á hross.   Mikið tjón á bílnum en ekki vitað um ástand hrossins þar sem það hljóp út í myrkrið eftir áreksturinn.   Á Meðallandsvegi var ekið á lamb þann 5.10. Umtalsvert tjón var á ökutækinu og þarf ekki að fjölyrða um ástand lambsins.   Laus hundur hljóp í veg fyrir bifreið á Suðurlandsvegi við Laugardæli þannig að ökumaður hennar þurfti aðnauðhemla til að koma í veg fyrir að lenda í dýrinu.   Hundurinn hljóp af vettvangi og eigandi var hvergi sjáanlegur. Í Vík tók laus Husky hundur sig til og át gæs sem varð á vegi hans.   Málið er til meðferðar hjá lögreglu og sveitarfélagi en sami hundur er sagður hafa drepið kött sem hann náði í þegar hann sleit sig frá eiganda sínum fyrr á þessu ári.

Umferðareftirlitsmenn okkar gerðu víðreist.   Fengu lögreglumenn á Suðurnesjum til liðs við sig og ræddu, ásamt skattayfirvöldum við fjölda atvinnubílstjóra við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þrjú atriði leiddu til kæru vegna brota á umferðarlögum.

Tveir brunar urðu í umdæminu. Í öðrum þeirra eyðilagðist sumarhús í Brekkuskógi þegar eldur varð laus þar.   Vísbendingar eru um að eldur hafi kviknað út frá rafmagni en málið er í vinnslu tæknideildar LRH og Mannvirkjastofnunar.     Þá kom upp eldur í rafmagnsverkstæði á Hellu í gærkvöldi.   Unnið er að rannsókn þess máls og að venju er það sérfræðingar tæknideildar LRH sem munu sinna því.   Ekki er vitað um eldsupptök þar.

Gerð var húsleit í húsi í Hveragerði og húsráðandi handtekinn grunaður um ræktun kannabis í því og í skúr þar við. Hald var lagt á nokkurn fjölda kannabisplantna og eins umtalsvert fjármagn í reiðufé í ýmsum gjaldmiðlum en rannsókn málsins hefur varkið grunsemdir um peningaþvætti tengt framleiðslu og sölu fíkniefna.

Hverfislögreglumaður í Ölfusi fundaði með forvarnarteymi sveitarfélagsins í liðinni viku um skipulag þeirra mála í vetur.   Mikið og gott samastarf er við félagasmálayfirvöld allstaðar í umdæminu og mikill áhugi hjá þeim til að takast á við verkefni tengd forvörnum.   Lögreglufulltrúi rannsóknardeildar hélt í vikunni 6 fyrirlestra í Vallaskóla á Selfossi um ýmis mál tengd börnum s.s. netglæpi, heimilisofbeldi, kynferðisbrot o.fl. Um árlegt verkefni er að ræða.