22 Mars 2024 14:26

Það er viðbúið að margir landsmanna séu á faraldsfæti um þessar mundir, nú þegar páskarnir eru á næsta leyti. Það er því tilvalið að beinum sjónum okkar að afbrotavörnum og hvernig megi koma í veg fyrir innbrot á heimili. Lögreglan hefur oft nefnt leiðir í þeim efnum hér á þessum vettvangi, en í meðfylgjandi myndbandi er mikilvægi þess að hafa traustar hurðalæsingar, útiljós með hreyfiskynjara, traustar gluggalæsingar og inniljós með tímastillir haldið á lofti.