19 September 2019 20:30

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu minnir hjólreiðamenn á mikilvægi þess að þeir hafi ljós á hjólum sínum í umferðinni og að þeir noti líka hjálm og endurskin. Nú er orðið dimmt á kvöldin og því mikilvægt að þessir hlutir séu í lagi, en með því stuðla hjólreiðamenn að eigin umferðaröryggi og annarra. Þeir sem eru gangandi eða hlaupandi eru sömuleiðis hvattir til að nota endurskinsmerki, en gildi þessa einfalda öryggisbúnaðar verður seint ofmetið.