7 Júlí 2010 12:00

Karl á sextugsaldri slasaðist þegar hann féll um tvo metra niður af vöruhillu í vörugeymslu í Grafarvogi um kvöldmatarleytið í gær. Hann var fluttur á slysadeild en ekki er vitað frekar um líðan hans. Maðurinn var við vinnu sína þegar óhappið varð.