27 Maí 2019 16:48

Það er með öllu óskiljanlegt hversu oft ökumenn reyna að troða sér framhjá lokunum í umdæminu og skiptir þá engu þótt um vettvang slyss sé að ræða. Þetta var því miður raunin enn eina ferðina  í gærdag, en þá var lögreglan kölluð til vegna umferðarslyss á mótum Sogavegar og Austurgerðis, rétt norðan Bústaðavegar. Þar var bifreið ekið á barn á reiðhjóli og strax ljóst að um alvarlegt slys var að ræða. Setja þurfti upp lokun á Bústaðavegi vegna þessa svo m.a. væri hægt með öruggum hætti fyrir viðbragðsaðila að athafna sig á vettvangi. Þrátt fyrir ökutæki lögreglu á staðnum, bæði bílar og bifhjól með blikkandi ljós, freistuðu ökumenn þess að troða sér framhjá og tókst einhverjum það uns þeir urðu að nema staðar beint við slysstaðinn. Svona háttsemi er með öllu ólíðandi og hinir sömu þurfa að hugsa sinn gang, því varla vill nokkur maður skapa frekari hættu á vettvangi þar sem þegar hefur orðið slys.