25 Apríl 2007 12:00

Karlmaður um þrítugt var stöðvaður á höfuðborgarsvæðinu í gærmorgun en sá ók fólksbifreið með 6 ára barn sér við hlið í framsæti. Hvorki maðurinn né barnið voru með bílbelti. Því miður er þetta ekki einsdæmi þótt öllum megi vera ljóst að svona gáleysi er með öllu ólíðandi. Ökumaðurinn á sekt yfir höfði sér.

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu gekk almennt vel fyrir sig í gær en aðeins fimmtán umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu. Níu voru teknir fyrir hraðakstur og einn þeirra, kona á sextugsaldri, má búast við sviptingu ökuleyfis. Bíll konunnar mældist á rúmlega tvöföldum leyfilegum hámarkshraða í íbúðargötu. Tveir voru teknir fyrir ölvunarakstur en annar þeirra, karlmaður á fertugsaldri, hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.