13 September 2010 12:00

Karl á fertugsaldri var stöðvaður við akstur á Reykjanesbraut, sunnan Hafnarfjarðar, um helgina en hugsunarleysi hans var með ólíkindum. Í aftursætinu á bíl mannsins voru tvö börn, 3 og 11 ára, en hvorugt þeirra var með tilskyldan öryggisbúnað. Fátt var um svör þegar leitað var eftir því hvers vegna eldra barnið var ekki í bílbelti og því yngra leyft að liggja og sofa í aftursætinu í stað þess að vera tryggilega fest í barnabílstól. Ökumaðurinn má búast við sekt en upplýsingar um málið verða jafnframt sendar barnaverndaryfirvöldum.