24 Maí 2011 12:00

Hugsunarleysi sumra er með ólíkindum en lögreglan verður alloft vitni að slíku. Dæmi um þetta er fólkið sem var á ferð í bíl í austurborginni um helgina. Við stýrið var karl á fimmtugsaldri og við hlið hans í framsætinu var kona, litlu yngri, sem hélt á barni á leikskólaaldri í fanginu en sama bílbeltið var spennt yfir þau bæði. Ekki þarf að fara mörgum orðum um það sem gerst hefði ef bíllinn hefði lent í árekstri en svona gáleysi er því miður ekki einsdæmi.

Fólkinu var gert að koma barninu fyrir í bílnum með viðeigandi og öruggum hætti og síðan fékk það að halda för sinni áfram.