1 Október 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á haglabyssur, riffla með hljóðdeyfum, lyfseðilsskyld lyf og peninga í húsleit sl. föstudag. Málavextir voru þeir að lögreglan fékk upplýsingar um að karlmaður á fimmtugsaldri væri að selja lyfseðilsskyld lyf. Við húsleit fundust tvær haglabyssur, tveir rifflar og hljóðdeyfar á þá. Einnig fannst töluvert magn af lyfjum að mestu leyti í sölupakkningum. Við nánari athugun kom í ljós að um var að ræða tæplega 600 töflur af Ritalíni og rúmlega 100 töflur af Mogadon. Á vettvangi fundust einnig nokkrar milljónir í peningum og seðlatalningavél sem gefur ákveðnar vísbendingar um umfang sölunnar. Við yfirheyrslu játaði maðurinn að hafa selt lyfseðilsskyld lyfi til langs tíma.