18 Október 2011 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn manna sem frömdu vopnað rán í úraverslun á Laugavegi í Reykjavík á ellefta tímanum í gærmorgun. Vegna málsins er óskað sérstaklega eftir vitnum að grunsamlegum mannaferðum á Vegamótastíg frá kl. 10 – 10:30 í gær. Þá eru þeir sem þekkja manninn á meðfylgjandi myndum, eða vita hvar hann er að finna, vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000 eða senda upplýsingar á netfangið abending@lrh.is