1 Janúar 2024 13:52

Árið 2023 var viðburðarríkt hjá lögreglu. Náttúran lét finna fyrir sér með vatnavöxtum, snjóflóðum og jarðhræringum víða um land. Einna viðamestar voru jarðhræringar á Reykjanesi sem síðar leiddu til rýmingar Grindavíkurbæjar þann 10. nóvember og eldgoss norðan við Grindavík 18. desember.

Á árinu tókst lögregla jafnframt á við eitt stærsta löggæsluverkefni sem hún hefur sinnt er Leiðtogafundur Evrópuráðsins var haldinn hér á landi dagana 16. og 17. maí. Um gríðarlega viðamikið verkefni var að ræða sem nánast allir starfsmenn lögreglu komu að með einum eða öðrum hætti.

Fyrir utan þessi stóru verkefni hafa önnur verkefni lögreglu verið með hefðbundnu sniði. Um 400 mál berast lögreglu á hverjum sólarhring og felur um þriðjungur þeirra það í sér að lögregla þarf að koma á vettvang. Í aðkallandi verkefnum er lögregla að jafnaði átta mínútur á vettvang en um 13 mínútur þegar verkefni krefjast ekki mesta forgangs. Aðstoðarbeiðnir til lögreglu er margskonar og tengjast ekki alltaf afbrotum heldur einnig veikindum, slysum eða öðru sem fólk þarf aðstoðar með.

Flest brot eiga sér stað á höfuðborgarsvæðinu og þar eru flestir handteknir. Á árinu handtók lögregla um 7.000 einstaklinga og voru 3.700 þeirra vistaðir í fangageymslu, sumir oftar en einu sinni.

Rán hafa aldrei verið fleiri en árið 2023 en þau voru um hundrað talsins. Þá hefur lögregla orðið vör við aukinn vopnaburð og voru vopnaútköll lögreglu og sérsveitar fleiri en áður. Á sama tíma fækkar tilkynningum til lögreglu vegna kynferðisbrota um 30% miðað við meðal fjölda tilkynninga 3 ár á undan. Fjöldi heimilisofbeldisbrota er svipaður og fyrri ár en um 1.100 tilvik eru tilkynnt til lögreglu árlega.

Athygli vekur að lögregla og tollur hafa aldrei lagt hald á meira magn af kókaíni og marijúana á íslenskri grundu en árið 2023.

Nánari upplýsingar og tölfræði má finna hér.