Gervihnattamynd (InSAR) sem barst í dag.
1 Mars 2021 20:20

//English below//
//Polski poniżej//

Vísindaráð almannavarna fundaði á fjarfundi í dag til að ræða jarðskjálftahrinuna á Reykjanesskaga. Fundinn sátu fulltrúar frá Veðurstofu Íslands, Háskóla Íslands, Umhverfisstofnun, Isavia-ANS, HS-Orku og ÍSOR.

Fram kom á fundinum að sjálfvirka jarðskjálftakerfi Veðurstofunnar hefur mælt um 1800 skjálfta frá miðnætti og eru þeir að mestu bundnir við svæði SV af Keili og Trölladyngju. Af þessum 1800 eru 23 skjálftar að stærð 3 eða stærri og um 3 skjálftar eru 4 að stærð eða stærri. Sá stærsti frá miðnætti mældist kl. 16:35, 5,1 að stærð og átti hann upptök um 1 km ASA við Keili.

Vísindaráð fór einnig yfir gervihnattamyndir (InSAR) sem bárust í dag. Úrvinnsla úr þeim myndum sýna meiri færslu en áður hefur orðið vart við á svæðinu síðustu daga. Líklegasta skýringin er sú að kvikugangur sé að myndast undir því svæði þar sem mesta jarðskjálftavirknin hefur verið síðustu daga. Unnið verður betur úr þessum nýju gögnum m.a. með líkangerð til þess að varpa skýrara ljósi á framvindu mála.
Í ljósi þessara nýju gagna sem rædd voru á fundinum í dag er mikilvægt að skoða nánar þá sviðsmynd sem snýr að kvikuinnskoti undir svæðinu við Fagradalsfjall

Mögulegar sviðsmyndir:
• Það dregur úr jarðskjálftavirkni næstu daga eða vikur
• Hrinan mun færast í aukana með stærri skjálftum, allt að 6 að stærð í nágrenni við Fagradalsfjall
• Skjálfti af stærða allt a 6.5 verður sem á sér upptök í Brennisteinsfjöllum
• Kvikuinnskot haldi áfram í nágrenni við Fagradalsfjall:
i) Kvikuinnskotsvirkni minnkar og kvika storknar
ii) Leiðir til flæðigoss með hraunflæði sem mun líklega ekki ógna byggð

Núverandi virkni á Reykjanesskaga er kaflaskipt og er erfitt að spá fyrir um nákvæma framvindu. Von er á nýjum gögnum síðar í vikunni sem geta varpað skýrara ljósi á ástæður þessarar hrinu. Vísindaráð mun funda aftur á morgun til að leggja frekara mat á þau gögn sem liggja fyrir.