4 Febrúar 2022 11:56

Vegna yfirstandandi leitar að flugvél sem hvarf um hádegisbil í gær er þess óskað að eigendur sumarbústaða við sunnanvert Þingvallavatn yfirfari öryggismyndavélar sem snúa að vatninu og gæti að því hvort þar séu gögn sem nýst gætu við leitina.  Einkum er horft til tímabilsins frá kl. 12:00 til kl. 14:00.  Reynist slíkar upplýsingar vera til staðar óskast þær sendar á sudurland@logreglan.is eða í gegn um örugga gátt (hér) eða með símtali í síma 444 2010